Hæbb allir simsarar!
Ég var að byrja spila sims fyrir svona viku og verð að segja að ég er húkkt á þennan leik. Ég sótti leikinn á netinu, þ.e.a.s bara grunninn, engar viðbætur. Veit einhver hvort maður getur bætt viðbótum á leikinn ef maður hefur sótt hann á netið? Jæja, allavegana, þá var það strax eitt sem ég varð var við sem fór ægilega í taugarnar á mér og það er þegar simsarnir eru að labba t.d inn um hurð og eru fyrir hvort örðum…*garg*, þetta er gígantískir treghausar! Allavegana hjá mér kemur fyrir að allar skipanirnar detta út og simsinn stendur bara þarna eins og illa gerður hlutur og yppir öxlum! Gasp og svei. Ég gef þessum leik Irritation-factor uppá 7 af tíu mögulegum.Annars hefur margt annað farið í taugarnar á mér líka við þennan leik, en belive me, hann er of góður til þess að gallarnir yfirgnæfi kostina. Verst að ég hef verið að eyða það miklum tíma í þennan leik að það er farið að koma niður á náminu. Hef ekki opnað bók í viku, enda setti ég mér það skilyrði í gær að spila aðeins sims um helgar… gangi mér vel!
Jæja, that´s about it.
Lengi lifi Sims og þess fylgifiskar!