Semsagt, þetta er fjölskylda sem ég og vinur minn bjuggum til. Ég ætla að byrjar að segja frá lífi þeirra í Lakeview, (Sims 3).

Lance Aldrin og Mindy Crowley voru ný-trúlofuð, flutt inn í lítið hús með einu svefnherbergi, einu baðherbergi, einu vinnuherbergi, ein lítil stofa með sjónvarpi og sófa og svo sameiginlegt eldhús/borðstofa. Lance, vill byrja að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Hann fær sér vinnu í bankanum á meðan Mindy fær sér vinnu á veitingastað. Mindy, vinnur við að þjóna en vill samt byrja að elda. Fyrsta dagurinn hjá Lance fer að hitta nýja félaga í bankanum og Mindy byrjar að gera það sama. Mindy hittir Don Lothario, ungan, ríkan, fyndinn og tælandi mann. Þau byrja að tala og drekka. Allt í einu kyssir Don hana. Hún byrjar að kyssa tilbaka! Lance, sem var nýkomin úr vinnuni og ætlaði að koma Mindy á óvart fellur næst um niður af sorg. Hann hleypur að Don og löðrungar hann. Öskrar hann svo á hann og stekur hann og kýlir hann fast í andlitið, Don, sterkur og stór maður, hoppar á Lance og tæklar hann. Þeir slást á meðan Mindy biður þá um að hætta, Don, varð sigurvegarinn í slagnum. Mindy reynir að biðja Lance fyrirgefningar en hann slær hana bara í burtu. Hann tekur leigubíl heim og sefur á bedda. Mindy keyrir heim og legst upp í rúmið, en fær sér fyrst bita. Rétt áður en hún sofnar, hugsar hún um Don.


Næsta dag vaknar Mindy og Lance er farinn í vinnuna. Hún fær sér morgunmat og sest niður. Dyrabjöllunni er hringt. Hún stendur upp og opnar. Þar stendur Don sem stekkur á hana og kyssir. Þessi koss leiðir svo að keleríi sem leiðir þau uppí rúm. Don þarf svo að fara í vinnuna og keyrir í burtu. Mindy hugsar um sem gerðist og mundi eftir skrýtna hljóðinu sem kom. Svo klæddi hún sig og fór í vinnuna.

Kemur meira if ya dig C=