Ég er nýlega búin að kaupa sims 3 og hann gengur fínt hjá mér en ég tek eftir smá göllum sem gætu mögulega bara verið hjá mér, en mig langar til að athuga hvort aðrir séu líka með þá.

Í fyrsta lagi þá get ég ekki gert manneskjurnar extremely feitar eða mjóar, það verður að vera akkúrat í miðjunni, annars er eins og líkami þeirra fari í sundur.

Í öðru lagi þá get ég ekki hraðspólað áfram, þetta er alltaf á sama hæga hraðanum.

Í þriðja lagi þá sýnist mér simsarnir dálítið tregir til að gera allt, það tekur fólkið hjá mér svona 30 sekúndur að átta sig á því hvað það á að gera og svo gerir það það súperhægt -.-

Einhverjir aðrir með eins vandamál? Gæti verið að það sé hægt að downloada einhverjum patchi til að það virki?
The word ‘politics’ is derived from the word ‘poly’, meaning ‘many’, and the word ‘ticks’, meaning ‘blood sucking parasites’.