Bara til að láta vita þá er ég Hard-Core spilari frá því ég keypti Half-Life árið 2002 og hef ekki spilað Sims mikið síðan.

Ég spilaði Sims 2 smávegins á tímabili árið 2005 en bara bjó til hús og svoleiðis.

Núna er ég að hætta/fara úr Hard-Core og yfir í Casual, ekki spurja afhverju!

Ég heyrði að Sims 3 verði sá besti og hann mun toppa Sims 1 og 2 og alla aukapakkana til samans.

Ég veit að The Sims 3 mun ekki koma út fyrr en í júní, en þegar hann kemur þá mun ég setja upp aðgang að húsum sem ég mun búa til :)

Já, ég ætla að búa til hús fyrir The Sims 3 og ef ykkur lýst á fyrstu húsin þá mun ég gera það að mínu hobby í einhverja mánuði :)