Húsakeppnin mikla!

Við ætlum að vera með svakalega flotta keppni, ef þið eruð góð í að búa til flott hús þá endilega að taka þátt.
Þessi keppni er í 7 lotum, fyrstu vikuna senda allir inn og svo dettur einn út í hverri viku.

Þið eigið semsagt að búa til fjölskyldu – og sendið mynd af einu herbergi í hverri viku.
1. Senda inn mynd af fjölskyldunni – enginn dettur út.
2. Húsið að utan og garðurinn.
3. Hjónaherbergið.
4. Barnaherbergin.
5. Skrifstofuherbergið.
6. Baðherbergið.
7. Opið rými : t.d. eldhúsið, stofan, borðstofan og sjónvarpsholið.

Fjölskyldan á að vera hjón, með tvíbura child.
Það er bannað að nota download, nema í fjölskylduna.
Lóðin á að vera hámark 3x3.
Því minni lóð sem þið kaupið því meiri penig eigið þið eftir.
Það má gera tvisvar sinnum peningasvindl (motherlode) en ekki meira.
8 keppendur komast að.
Húsið verður að vera á jarðhæð.

Við setjum þessar reglur til þess að allir verði jafnir í keppninni, vonandi vilja sem flestir taka þátt, ef þið viljið taka þátt þá skráið þið ykkur bara í álit :D

Hvernig við ákveðum hver dettur út :
Í dómnefndinni verðum við, semsagt palla og beggasol :D
Svo verður líka skoðanakönnun á síðunni sem gefur aukastig.
Dómnefndin gefur keppendum stig frá 1-10.
Svo setjum við skoðanakönnun á síðuna sem verður með spurningunni Hvaða herbergi er flottast ?
Sá sem fær flest atkvæði í könnunnunni fær 5 stig.
Fyrir annað sætið í könnunnunni fær keppandinn 3 stig.
Fyrir þriðja sætið í könnunnunni fær keppandinn 1 stig.
Afgangurinn af keppendunum fær engin aukastig.


Allir sem taka þátt fá að setja auglýsingu af sinni sims síðu á sims-begga síðuna – fáið að búa hana til sjálf ef þið viljið.
Sá sem vinnur fær að eiga myndaalbúm með sínu húsi á síðunni, og fær sims síðu ef hann vill og ráðgjöf – sú síða verður að sjálfsögðu auglýst á sims-begga.

Svo bara allir að taka þátt, skrá sig hér eða inná sims-begga.
Aðeins 8 komast að svo drífið ykkur.
Ef þið hafið einhverjar fleiri hugmyndir af verðlaunum þá sendiði mér bara skilaboð og ég skoða málið.

Kv. Palla og Beggasol

Keppnin er á www.sims-begga.central.is

Bætt við 15. nóvember 2008 - 20:31
Keppendur eru :

Brinnza
Lifðu lífinu með ró, þú kemst hvort eð er ekki lifandi frá því :D