Hérna verður áfram sagt frá vandræðum Kat og Patty í háskólanum.

Nú var Patty komin í veruleg vandræði,aðeins búin með eina og hálfa önn og ófrísk. Hurley Raff var nú þegar búin að gleyma Patty og hunsaði hana stöðugt enda einum of fínn fyrir stelpu frá Riverblossom Hills. Mánuðirnir liðu og bumban á Patty óx og óx, á síðustu dögum óléttunnar leið Patty hörmulega og svaf mestallan daginn og át heil ósköp af mat. Kat hirti hinsvegar ekkert um systur sína enda Patty að kenna að hún væri að verða móðir um tvítugt. Eins og sagt var hér áðan át Patty heil ósköp, þegar hún var að fara enn eina ferðina niður í kaffiteríuna og var búin með hálfan skammt af pönnukökum , missti hún allt í einu vatnið og eftir skamma stund eignaðist hún lítinn dreng sem hún skírði Stuart. Stuart var fremur óþekkur drengur og svaf sjaldan og orgaði einstaklega mikið sérstaklega um nætur, þá var ekki ósjaldan sem herbergisfélagar kvörtuðu yfir svefnleysi. Þá fannst Patty að tími væri til kominn að fara að skrapa fyrir smá peningum í húsnæði, Kat sem nú loksins var farin að átta sig á að námið skipti máli ákvað að leggja hönd á plóg og hjálpa Patty með peningamál. Þær skiptust á að passa Stuart á milli þess sem þær unnu vinnuna sína og lærðu fyrir próf. Að lokum eftir margna vikna harðindi gátu þær loks tekið á leigu út hús mjög nálægt bókasafni. Stuart var núna orðin stór strákur og haldin var fyrir hann lítil afmælisveisla aðeins fyrir þá nánustu.

Jæja ég hef ekki mikinn tíma en Hurley Raff vill ennþá ekki viðurkenna Stuart og Patty og lifir í lygi