Miry Iceta var núna orðin þriggja barna móðir og gift þara að auki sínum elskulega Karlon. Patty og Kat voru æ oftar að heiman og þá sjaldnan sem þær komu heim fóru þær upp í rúm að sofa. Marsika var nýorðin toodler og Miry naut þess að kenna henni að ganga , tala og að fara á koppinn. Miry og Klaron voru þannig stödd í lífinu að þau þurftu varla að hafa áhyggjur af peningum. Þau höfðu nefnilega unnið stórvinning í LOTTO(motherlode). En Miry vildi nú samt rosalega mikið fara aftur út á vinnumarkaðinn og þess vegna réði hún Nanny til þess að sjá um Marsiku og ákvað að prófa þennan veitingabransa. Miry keypti lítið hús í Riverblossom Hills og gerði það upp svo nú leit það út eins og kósí veitingastaður. Fyrstu vikurnar gengu vel og nú kom sér vel að vera vinmargur í æsku því tugir fólks streymdu inn. Með þessu fólki streymdi einnig inn maður að nafni Hugh Chadwick, gamall vinur frá menntaskólaárum Miry. Þegar Miry sá hann fyrst tók hún eftir því hvað Hugh var orðinn myndarlegur, og sömuleiðis tók Hugh eftir glæsileika Miry. Miry og Hugh ákváðu að hittast heima hjá Miry og tala um gleymda tíma. Þau töluðu lengi, lengi og Miry að óvörum kyssti Hugh hana rembingskossi á munninn sem Miry svaraði bara til baka, enda Karlon í vinnunni og Marsika sofandi. Kossaflensið endaði að lokum upp í rúmi. Hugh var löngu farinn áður en Karlon kom heim. Miry ,Marsika og Karlon borðuðu síðan kvöldmat saman, sem Miry gat ekki einbeitt sér að vegna þessa að hún gat ekki hætt að hugsa um Huhg.Næstu vikur hittust Miry og Hugh æ oftar, og þar sem Hugh var alltaf farinn áður en Karlon kom heim grunaði hann aldrei Miry og græsku. En þetta ástarævintýri þeirra endaði þó þegar Miry komst að því að hún væri ófrísk. Þetta var ekki alveg nógu gott. Þegar næsti fundur átti sér stað sagði Miry honum frá þungununni. Hugh brást strax við og sagðist ekki geta þetta lengur og fór.
En þó að Hugh væri farinn fó bumban á Miry að stækka og Karlon var yfir sig ánægður, því hann hélt að hann væri faðirinn. Miry eignaðist að lokum strák sem skírður var Gregory. karlon varð himinlifandi með strákinn enda umkringdum stelpum á heimilinu. En Miry var smeyk þegar hún sá hversu líkur Gregory var raunverulega föður sínum. Karlon varð einnig var við það en reyndi eins og hann gat að taka ekki eftir því. Áfram hélt lífið og Marsika varð Child. Haldin var lítil veisla sem endaði reyndar með hagléli enda kominn vetur.Patty og Kat voru búnar að drusla sér í háskóla þar sem mesti tíminn fór í partístand og kelerí. Gregory var orðinn toodler og var hrein eftirmynd af Hugh. Karlon þoldi þetta því ekki lengur og skildi við Miry sem sá gríðarlega mikið eftir honum.Miry lokaði veitingastaðnum og fékk sér vinnu á skrifstofu.
Patty og kat eru á öðru ári í háskóla.
Marsika við það að verða unglingur og
Gregory ennþá toodler.

Framhald?????'