Þessi saga er um húshjálpina Miry Iceta.

Allison Hefernina Miry Jo Iceta eins og hún hét fullu nafni ákvað í æsku að kalla sig einungis Miry. Það kom sér vel því í skólanum varð hún vinsæl hjá krökkunum og eignaðist marga vini.Um helgar hélt hún vanalega partý þar sem að foreldrar hennar voru báðir látnir og þess vegna bjó hún hjá frænku sinni sem var aldrei heima. Foreldrar Miry voru vel efnaðir þegar þeir voru á lífi og arfleiddu Miry að öllu. Þegar Miry var orðin 18 ára flutti hún sem lengst í burtu í stórt hús og keypti liggur við allt það dýrasta. Þar hélt hún einnig reglulega Partý og á milli þess fór hún í búðir, í bíó og á kaffihús og klúbba. En brátt voru ekki fleiri peningar eftir og Miry neyddist til að leita sér að vinnu.Það stóð ekki margt til boða nema vinna við húshjálp eða uppvask. Miry valdi hjálpina og var eflaust glöð yfir eggjandi búningnum. En þrifin voru verri og fljótt leiddist Miry allt rykið. Á kaffistofunni í hádegishléinu rakst Miry á starfsfélaga sinn hana Patsy Britt. Hún ráðlagði henni að reyna að tæla einn af þessum mönnum sem hún þreif hjá og sjá hvað skeði.þetta fannst Miry frábær hugmynd og ákvað að fyrsta fórnalambið yrði ríkur maður að nafni Greg Erlin.Svo næsta dag gerði Miry mikið í því að daðra við Greg sem tók því ekki illa, en Greg var giftur og átti eina 9 ára gamla dóttur. En ástarævintýri Gregs og Miry leiddi þau að svefnherberginu..
Á sama tíma stökk lífsglaða dóttir Gregs út úr skólabílnum og gekk inn í húsið en fann hvergi pabba sinn en kom svo að þeim í svefnherberginu. Hún brjálaðist og hringdi í mömmu sína sem kom fjúkandi reið heim og heimtaði skilnað. Þá var Miry löngu komin út og faldi sig í garðinum eftir misheppnaðri tilraun. Það liðu 3 vikur og Miry var að fara að koma sér vel fyrir í sófanum þegar henni varð skyndilega óglatt og kastaði upp á sófanum. Henni grunaði ekkert fyrr en hún var komin með smá bumbu 3 mánuði eftir atvikið. Hún hringdi í Greg og sagði honum tíðindin. Hún flutti þá til hans þar sem að þau biðu eftir barninu að koma í heiminn. Að lokum fékk Miry hríðir og þá komu tvíburastelpur í heiminn sem voru skírðar Patty og Kat. Miry varð frekar smeyk yfir þessum tvíburum sem hættu bara ekki að gráta.
Tvíburarnir stækkuðu og urðu toodlerar þá fékk Greg sér aðra vinnu sem lögga. Miry var ennþá heima hjá tvíburunum og var nú farin að líka við móðurhlutverkið, en því miður var því farið hjá Greg því hann sá eftir því að hafa svikið fjölskylduna sína og var orðinn leiður á Miry. Þess vegna var hann ekki heima næsta morgun þegar hann átti að vera kominn heim af næturvakt.Miry var auðvitað döpur yfir þessu og þurfti nú að fara út á vinnumarkaðinn. Hún fékk Nanny til þess að passa toodlerana og fékk sér vinnu sem uppvaskari hjá veitingastað.
Miry safnaði nægum pening til þess að halda veglega veislu handa stelpunum sínum þegar þær urðu child. En nú var Miry í leit að eiginmanni en það gekk ekki vel þangað til hún rakst á Patsy sem kynnti hana fyrir manni að nafni Klaron. Klaron reyndist fyndinn, glæsilegur og fjölskylduvænn. Og brátt giftust þau.Um nóttina heyrðist lag.
Nú var Miry ólétt í annað sinn og brátt fæddist önnur stelpa á sama degi og Patty og Kat urðu að unglingum. Stelpan var skírð Marsika og var rosalega lík Miry. Nú voru tvúburarnir komnir með vinnu ,báðar sem afgreiðslumenn. Nú stóð það þannig að Miry og Klaron lifa hamingjusöm saman. Patty og Kat eru báðar komnar með kærasta og Marsika vælir endalaust

Framhald ????