Sasha Tirus var fædd og uppalin í Riverblossom Hills. Hún bjó til 18 ára aldurs með föður og móður ásamt systkinum sínum tveimur. Þegar Sasha var aðein 12 ára var hún byrjuð að gæla við drauminn um að verða fatahönnuður. En það varð ekki úr því alveg strax því móðir Söshu dó í hræðilegu bílslysi þegar Sasha var 13 ára og eftir það varð faðir hennar þunglyndur og sinnti ekki krökkunum. Þess vegna varð Sasha að sjá það eftir var af uppeldi systkina sinna sem þá voru 7 og 9 ára. Þunglyndi pabba hennar hætti um það leiti sem hún varð 17 ára.Lífið hélt áfram og 18 ára flutti Sasha að heiman og varð módel. 19 ára gömul var hún orðin fyrsta flokks fatahönnuður og naut lífsins. Nú var Sasha orðin svo efnuð að hún hafði efni á stærra húsi. Þegar hún var nýbúin að taka upp úr kössunum hringsi dyrabjallan og fyrir utan stóð maðurinn sem bjó í næsta húsi við Söshu. Hún bauð honum inn og hann kynnti sig sem George Hill. Hann bauð hjálp sína við að taka upp úr kössunum og drakk einnig með henni kaffi. Þau byrjuðu að hittast oftar og að lokum bað George hana um að giftast sér,Sasha játaði. Haldin var lítil veisla fyrir nánustu ættingja og vini í bakgarðinum og um nóttina heyrðist lítið barnalag. á meðgöngunni ældi Sasha oft og var einstaklega óglatt, en þessu linnti nú. Eftir 9 mánuði fæddist þeim sonur sem var skírður Peter. Um sama leyti fluttu aðrir eigendur inn í gamla húsið hans George. Konan sem flutti þar ásamt manni sínum var líka ófrísk og eignaðist stúlkubarn. Peter varð toodler og Sasha hafði einkar gaman af því að kenna litla englinum sínum að ganga,tala og að fara á koppinn. Þegar Peter var að fagna 4 ára afmæli sínu var Sasha byrjuð að hugsa um comeback inn í fatabransann.
Tíminn leið Sasha var komin aftur inn í bransann,Peter orðinn níu ára og George kominn með nýja vinnu sem ljósmyndari og allt virðist ganga þeim í haginn. Svo varð Sasha ófrísk aftur og í þetta sinn var það stúlkubarn sem kom í heiminn skírð Faith.Peter var núna orðinn unglingur og það sama gildi um stelpuna í næsta húsi hún Paris. Þau enduðu saman og voru ástfanginn upp yfir haus. Faith var orðin child og var mjög vinsæl í einkaskólanum sínum. Og
Sasha og George er ástfangin sem aldrei fyrr.