- Gordon - Gordon

Raven Gordon er ljóshærð ung kona. Hún er 20 ára. Alla sína æfi hefur henni langað að verða model. Og nú var hún búin að fá samning hjá litlu fyrirtæki. En þá varð hún ólétt fyrir slysni. Hún gat ekki hugsað sér að eyða fóstrinu, svo hún lét vaða og eignaðist sæta stelpu níu mánuðum síðar, sem hún nefndi Rachel. Pabbinn vildi reyndar ekkert með þær hafa svo Raven var nú einstæð móðir án vinnu. Hún átti þó mikinn pening sem hún erfði frá foreldrum sínum, og ekkert var að óttast.
En nú er Raven 22 ára. Hún hefur verið í litlum vinnum hér og þar, og fengið laun fyrir það. Hún býr í mjög litlu húsi, með tvem litlum svefherbergjum og agnarsmáu baðherbergi.

Raven og Rachel hafa það gott í litla húsinu, Raven elskar dóttur sína meira en allt. Hún er alltaf heima hjá henni og lítur ekki frá henni. Það getur verið þreytandi að geta ekki farið á stefnumót án þess að þurfa að hafa áhyggjur af barninu sínu allan tíma, sem er sofandi hjá einhverri ókunnugri fóstru. Svo Raven sleppti öllu slíku.
Hún varð þreytt og skítug því Rachel var nr.1 í forgangsröðunninni. Hún hafði lítinn tíma fyrir sig. Þegar Rachel svaf, svaf Raven. Ef Rachel lék sér greip hún tækifærið og skrapp í sturtu. Svona liðu nokkrir dagar, en svo var Raven farin að venjast að skreppa frá smá í einu og treysti fóstrum miklu betur fyrir dóttur sinni.
Einn daginn skrapp hún í búðir og keypti æðisleg föt á sig og dótturina. Raven elskaði búðarráp og þetta herti hana heilmikið upp.
Næsta morgun fór Raven yfir peningamál hjá þeim mæðgum og henni leist ekki á blikuna. Hún fór strax að leita að vinnu. Hún fann ekkert sem hæfði sér. Dagurinn leið og seinna ákvað hún að kenna Rachel allt sem þurfti að kunna. Labba, tala og kunna á koppin. Síðar um kvöldið sofnuðu þær báðar með bros á vör.

Það var komið að því að Rachel yrði child. Fóstran var stödd hjá þeim, svo það var haldin pínu lítil einka afmælisveisla. Rachel blés á kertin og varð sætur child. Eftir litlu afmælisveisluna fór hún í háttin. Raven týndi upp rusl og henti kökunni, því hún vissi að hún yrði ekki til neins.
Næsta morgun fór Rachel í skólann. Á meðan var Raven að æfa fyrir framan sjónvarpið og horfa á þennan íþróttaþátt. Hún vildi vera í formi ef hún fengi aftur samning hjá model fyrirtæki.
Sama kvöld var Raven farin að hafa miklar áhyggjur af peningamálum og fékk sér vinnu í hernum. Það var vel borgað og stuttur vinnutími.
Þær vöknuðu báðar næsta morgun tilbúnar í skólann og vinnuna. Þær kvöddust og fóru hver í sína átt.
Þegar Raven kom heim hafði hún misst vinnuna og var miður sín. Rachel kom samt hlaupandi og faðmaði hana.(krakkinn er alltaf hlaupandi, ég held að hann sé ofvirkur eða eitthvað!!)
Raven lét eins og ekkert væri en leið svo hörmulega því hún vissi að ef hún fengi ekki vinnu fljótlega myndu þær svelta og Rachel tekin af henni.
Svo hún sofnaði verulega áhyggju full..


Er ekki komin lengra.! :)
Endilega kommenta hvað ykkur fannst..:D

Kær kveðja
Heiða123


p.s. Raven tekur þátt í keppni á www.sims2-keppnir.central.is xD