THE SMITH..:D Smith

Richard D. Smith og Tiffany Smith eru nýgift. Þau fluttu í eitt glæsilegasta húsið í Riverblossom hills (made by me). Richard hafði keypt það handa Tiffany í svona brúðkaupsgjöf. Auðvitað var hún mjög glöð.
Þau voru nýkomin úr brúðkaupsferð frá Twikii Island. Þau byrjuðu dagana í nýja húsinu rólega. Richard fékk sér vinnu í íþróttvinnunni og starfaði sem lukkudýr í einu merkasta liði simsanna. Tiffany sá bara um húsið heima alla vinkuna.
Bæði langaði þeim í barn svo það var reynt á það. Tiffany varð ólétt og þau urðu afskaplega glöð. Svona liðu þessir þrír dagar sem hún var ólétt.: Richard fór í vinnuna hvern einasta dag og Tiffany var heima að hugsa mest um sjálfa sig og heilsuna, og Richard hjálpaði eins og hann gat. Stundum eldaði hann matinn og þvoði upp eftir hann, tók til o.fl.
Loks var komið að því, Tiffany var á einum lélegasta stað þegar hún fékk hríði. Þ.e.a.s. úti við nánast ekkert ljós í nóttinni. Hún eignaðist fyrst gullfallega stelpu, klukkan 02:45, og sú seinni kom um þrjúleitið. Alveg jafn mikið krútt. Þær voru nefndar Monica og Rachel (þið megið skammast eins og þið viljið útaf nöfnunum, en áður en þið byrjið vil ég bara segja að það er ekki eins og friends þættirnir eigi höfundarrétt yfir þessum nöfnum).
Þegar tvíburarnir komu í heiminn var ekki lengur pláss í húsinu, svo þau ákváðu að spenda smá peningum og stækka efri hæðina. Ég tók þakið af og bjó til stærri stofu og barnaherb.
Þá var loks pláss fyrir þessa fjögurra manna fjölsk. Tiffany þurfti að ráða barnapíu til að hjálpa við börnin og öll heimilisverkin. Richard vann eins og vanalega og var nú búinn að fá stöðuhækkun, tvisvar.! Hann þurfti náttúrulega að geta séð fyrir fjölskyldunni eftir peningatapið við stækkun hússins.
Dagarnir liðu og það var komið að afmælisdegi Monicu og Rachelar. Það var ekki haldin nein veisla, keyptar tvær kökur og svo bara blásið. Eftir mikil fagnaðarlæti frá foreldrum voru þær orðnar toddler. Gullfallegar toddler.

Ekki komin lengra með þessa fjölskyldu..:)
Hvernig fannst ykkur..??
Endilega commenta.:D