Alba fjölskyldan

Þetta er fjölskylda sem ég bjó til með vinkonu minni. Við erum bara rétt byrjaðar að spila í þessari fjölskyldu og mér datt í hug að gera smá sögu um hana. Ég skal byrja á því að lýsa fjölskyldu meðlimum:

Meredith er með ljós skollitað hár og í næst ljósasta skintone. Hún er í þarna djamm aspiration og er vatnsberi.
Turn on: Dökkt hár og nærföt. Turn off: Fatness.

Jessica er með svart hár og í næstljósasta skintone. Hún er líka í djamm aspiration og er vog.
Turn on: Dökkt hár og skegg. Turn off: Fatness.

Meredith og Jessica eru systur. Þær fluttu í litið hús í Downtown og voru báðar á lausu. Þær innréttu það með næstum öllum sínum pening og fengu sér svo báðar vinnu til að jafna peningamál. Jessica vann við Music Career og Meredith sem ritari hjá dagblaði. Fyrsta daginn í vinnunni fengu þær báðar stöðuhækkun.

Dag einn komu gestir til að bjóða þær velkomnar. Meðal gestanna var maður sem hét John Lovers. Meredith þótti hann verulega sætur og þau fóru að spjalla. Þau tengdust mjög vel og urðu svona skotin í hvort öðru. En John var þegar giftur. Eitt kvöld sváfu þau saman alveg fyrir slysni. Meredith varð ólétt, en hún sagði honum það ekki.
Daginn eftir fór Jessica í bæinn meðan Meredith var í vinnunni. Hún kynntist barþjóni og þau fóru að spjalla. Hann hér Randy. Þau tengdust svo vel að þau urðu ástfangin af hvort öðru á aðeins einum degi. Þegar leið á kvöldið kisstust þau. Svo gerðu þau það í myndatökusjálfsala. Og Jessica varð ólétt. Hún kom heim þar sem Meredith var komin heim. Þær sögðu hvor annari frá deginum. Jessica sagði frá atburði dagsins og sagði henni að hún væri ólétt. Meredith óskaði henni til hamingju, en vissi ekki hvað gera skyldi. Báðar voru þær óléttar af hálfókunnugum mönnum. Jessica vissi þegar að Meredith var ólétt. Þær fengu sér kvöldmat og fóru svo í rúmið. Um morgunin áttu þær báðar frí og tóku öllu rólega. Jessica sagði Randy frá óléttunni og hann tók því rólega. Hann var mjög hamingjusamur. En meredith hélt sínum vanda leyndum fyrir John.

Þrem dögum seinna kom John í heimsók. Meredith sagði honum frá barninu sem þau áttu að fara að eiga saman. Hann gat ekki sagt neitt því um leið var hún Meredith komin með hríði. Hún fæddi lítinn strák sem var nefndur Patrick. Þegar strákurinn var komin uppí rúm sagði John að hann hafði skilið við konuna sína. Hann var fluttur í annað hús og var ánægður fráskilinn.
Meðan þessar samræður stóðu yfir fékk Jessica hríði. Hún eignaðist stelpu sem var nefnd Emma.

Svo erum við ekki komnar lengra.;D+
Hvað finnst ykkur..?