The Kain family - 1 Sandy Kain var lítil væmin ljóska, nýtrúlofuð og bjó í pínuponsu íbúð með kærasta sínum Mark og kettinum Susanne. Hún var komin nokkra mánuði á leið með lítinn strák. Þegar hann fæddist var hann skírður Tobias. Hann var örlítið ofvirkur krakki þegar hann stækkaði og svaf liggur við með höndina í klósettinu (einhver hlýtur að kannast við þetta!!). Þegar hann stækkaði var hann hinsvegar besti krakki í heimi. Alltaf með hæstu einkun og átti þrjá bestu vini og tvo bara vini. Afmælispartýið var risastórt og það fékk hæstu partýeinkunina og auðvitað fagnaði hann eins og brjálæðingur enda kominn á táningsaldurinn.
Einn daginn þegar mamma hans var nýkomin heim úr vinnunni hljóp hann til hennar og var mjög skrítinn á svipinn og sagði henni að koma strax. Sandy stökk af stað enda með vöðva eins og naut en grönn eins og gíraffaháls. Tobias leiddi hana inn í stofu þar sem Tony var einhvað að kyssa konu á fullu í sófanum. Sandy tjúllaðist og fór í slag við hann og rak hann svo úr húsinu. Hann fór burt með hangandi haus og konu á nærfötunum.
Sandy varð hálfþunglynd og hætti að vinna og svaf næstum allann daginn. Tobias réð þessvegna kall til að þrífa húsið. Hann hét Tim og var með risastórt nef og dimmbrúnt hár og í aðeins of opinni bleikri skirtu, voða sætur með ruslapoka í hendinni rekst hann á Sandy þar sem hún er í þunglyndis kasti að drekka kaffi. Hún bölvar og lítur upp og sér Tim og krossbregður. Hún stendur upp og hleypur inn í herbergið sitt og klæðir sig úr náttfötunum og skellir sér í bleika kjólinn sinn aftur. Hún málar sig og lagar hárið og slær sjálfan sig utan undir og segir sjálfri sér að hætta að hugsa um Tony.
Nokkrum dögum seinna voru þau orðnir nánir vinir. Bráðlega flytur Tim inn með köttinn sinn Sesar. Og áður en Tobias veit af eru þau trúlofuð og Sandy aftur ólétt. Þau flytja í stærra hús enda ekki pláss fyrir fjóra. Varla þrjá meira að segja. Nokkrum mánuðum seinna eignast Sandy dökkhærðann strák sem var skírður Harry. Harry var mjög rólegur krakki og svaf mestallann daginn.
Stuttu fyrir afmælið hans Harry kemur Tobias með feita, svarthærða stelpu heim sem heitir Daisy. Hún vildi ekki sleppa takinu á honum og beinlínis hékk í honum allann sólahringinn. Á endanum ákvað Sandy að senda hana heim. Með skottið á milli lappana hleypur hún heim til sín enda skíthrædd við Sandy. Tobias andar djúpt og er mjög ánægður með að losna við hana.
Í afmælinu hans Harry kom Tony í heimsókn. Hann kom til að tala við Tobias en Sandy rak hann burt. Þegar Harry var orðinn þriggja ára eignast Susanne fjóra kettlinga. Þau ættleiða þrjá í burtu en halda þeim fjórða og skíra hann Laurissa.
Á sama tíma og Harry lærði að labba varð Laurissa stór og sætur köttur. Mynstrið á henni var furðulegt og hún var skrítin á litin. Harry var alltaf með hendurnar utan um hálsinn á henni og þau urðu bestu vinir. Þegar Harry varð child fór Tim í burtu áður en afmælið byrjaði, hann sagðist þurfa að vinna. Sandy hringdi í vinnuna hans þegar allir gestirnir voru komnir en hann svaraði ekki. Hún hélt afmælið sem var frekar ömurlegt. Þegar Tim loksins lét sjá sig var hann ekki einn. Hann var með mann sem hét Benjamin með sér. Tim kynnti hann sem ‘vin’ sinn og sagði að þeir ynnu saman. En einn daginn þegar Sandy kom heim úr vinnunni kom Benjamin á móti henni og Tim hlaupandi á eftir sér. Tim greip í hann og horfði beint í augun á honum. En Benjamin brosti bara og kyssti hann.

Myndin er af Sandy þegar Mark var farinn frá henni og hún bjó ein með Tobias