Jæja, ég spurði tölvusnillinginn, frænda minn hvort að það yrði ekki sniðugt hjá mér að fá mér flakkara undir Sims leikina mína (og aðra PC leiki) en hann sagði að það þyrfti þá frekar að bæta við hraðann.
Semsagt, talvan mín tekur sér svo langan tíma að fara inn í Sims að ég skrepp alltaf frá til þess að hita mér kakó og ristabrauð og svoleiðis.
Allaveganna, þetta er fartölva sem ég nota í skólann líka. Semsagt.
Haldið þið að það borgi sig að fá flakkara?
Mig langar svo að kaupa mér fleiri leiki í Janúar =P
(útborgað úr jólafríinu =D )