Ég fann nýlega sims 1 heima hjá mér, og ég mundi hvað ég skemmti mér mikið í honum. Ég ákvað að prófa að installa honum og spila hann smá til að bera hann saman við sims 2 og VÁ hvað þetta er leiðinlegur leikur með lélega grafík núna. Ég man þegar hann kom út hvað mér fannst hann svo skemmtilegur og grafíkin svo flott.