Jááámm…
segir nafnið eitthvað?


Allavegana….ég var í SiMs í sumar (hef ekki farið í SiMs síðan þetta gerðist) og var bara að leika mér í einni fjölskyldu sem var þegar í leiknum. Svo eignuðust þau annað barn og það varð eitthvað mjög mikið álag á foreldrana (áttu tvö börn fyrir) og bara mjög erfitt að hugsa um þau (alltaf rautt í öllu eiginlega..).

Þannig að ég ákvað að svindla (þó ég sé löngu hætt því) og gerði move_object svindlið.
Barnið sem breytti öllu líðan í húsinu var orðinn að toodler.

Svo þegar ég fór aftur í fjölskylduna eftir að hafa gert svindlið. Þá lá barnið bara á jörðinni. Þannig að ég ætlaði að láta mömmuna taka hann upp. En nei þá var það ekki hægt, og þá tók ég eftir því að hann lá svona eins og minnstu börnin gera alltaf. Geta ekkert hreyft nema hendurnar. En samt var barnið jafn stórt og toodler og í toodler fötum. Og ég gat ekkert tekið það upp.

Þannig ég einfaldlega þurfti bara að bíða og láta barnavernanefnd taka börnin á heimilinu.

Hefuru þetta gerst hjá ykkur?


Og svo annað…..eftir að þetta gerðist…fór ég út úr fjölskyldunni og fór í aðra.
Og þegar ég klikkaði á húsið og það kemur svona mynd upp af fjölskyldunni þá tók ég eftir því að á öllum myndum af liggjandi hundum í fjölskyldum sást í beinagrindina þeirra (svona blár litur)….

Hefur þetta gerst hjá ykkur?


Þannig eftir þetta þá bara hætti ég einhvernveginn að fara í SiMs…því að einu sinni var eitthvað rugl með ólétturnar hjá mér, þannig að ég þurfti að uninstalla honum og installa aftur.

Núna langar mig að vita hvort þetta hefur gerst hjá ykkur..?
Annað hvort eða bæði…