Af hverju eru flestir hérna að nota einhver svindl? Hvar er gamanið í því að skrifa nokkrum sinnum motherlode eða boolprop testingcheatsenabled true og fá þá nóg pening til að flytja inní stóra húsið, eða fá max í öllum skills, hvar er challengið?

Ég get nú ekki sagt að ég hafi aldrei notað einhverja kóða, en það var þá alltaf eitthvað eins og boolprop constrainfloorelevation eða boolprop snapobjectstogrid, en það er þá bara til að búa til flott hús ALDREI til að aðstoða mig við einhvað sem á að vera áskorun. Til hvers að kaupa leikinn/ina ef maður ætlar ekkert að spila hann heldur nota bara einhverja kóða.

Ég hvet alla til að hætta öllu þessu helvítis svindli og byrja að spila heiðarlega, og það á við um alla leiki, ekki bara sims.