Michelle (kölluð Mish) Morente var heimsfræg og eftirsótt fyrirsæta, hún auglýsti aðallega fyrir BeBe-Sport.
Hún var með ljósbrúnt hár (var samt alltaf að lita hárið og að breyta um hárgreiðslu vegna fyrirsætustarfsins) og blá augu, málaði sig alltaf vandlega og klæddist alltaf samkvæmt nýjustu tísku.
Michelle aldist upp í ríkri fjölskyldu og var dekruð sem barn. Allir karlmenn eltast við hana og það mætti segja að hún gæti ekki haft það betra…eina vandamálið hennar var að hún gat ekki haldist lengi í sambandi, þar til hún kynntist Lee Drake.
Lee var hálfur indíáni, hann var hávaxinn og kraftalegur maður með sítt svart hár sem hann tók saman í fléttu fyrir aftan bak.
Hann starfaði sem lífvörður Michelle og bjó hjá henni vegna starfsins. Hann þoldi hana ekki í fyrstu vegna sjálfselsku hennar en fór svo að kynnast henni í alvöru og þau urðu nánari með hverjum deginum.
Michelle og Lee áttuðu sig brátt á því að þeim var farið að þykja hættulega vænt um hvort annað, hvorugt þeirra vildi þó viðurkenna það…
Einn daginn þegar Michelle var í fríi gat Lee ekki ráðið við sig, hann kyssti Michelle…henni brá en kyssti hann svo á móti, eftir marga kossa í sófanum enduðu þau uppí rúmi og eyddu saman nóttinni ;)

Nokkrum vikum seinna komst Michelle að því að hún var ólétt eftir nóttina góðu, hún varð skíthrædd. Michelle hafði aldrei ætlað sér að eignast börn, hún hafði alltaf ýmindað sér að búa ein í flottri íbúð með draumakærastanum. Hún hafði ekki einu sinni ætlað sér að giftast, hvað þá að fara útí barneignir.
Michelle þorði ekki að segja Lee frá þessu en hann komst að því nokkrum dögum seinna. Lee var skilningsríkur við Michelle og sagði henni að hann vildi endilega eignast barnið (það var þó vægt til orða tekið, honum dauðlangaði að eignast fjölskyldu), hann gat að lokum sannfært hana um að barnið væri kraftaverk og það besta sem gæti fyrir þau komið.
Þetta sama kvöld bauð hann henni út að borða á cosy og rómantískan veitingastað til að róa í henni taugarnar. Lee tók svo upp lítið svart box, inní boxinu leyndist trúlofunarhringur. Lee bað Michelle að giftast sér og hún játaðist honum =)

Núna er bara að bíða og sjá hvað gerist með barnið í framhaldinu ;)