Langaði að segja ykkur frá einum sims sem ég gerði sem ég skírði Ross Geller, auta eftir Friends-Ross.
Hann átti frábært líf, var í vísindageiranum, átti frábæra konu sem hét Andrea og tvo börn með henni. Ross og fjölskyldan stækkaði við sig, fluttu inni í stærra hús og svo kom að því að Ross hætti að vinna. Hann eyddi deginum að vera heima og gera við og lesa. Svo einn daginn ætlaði hann að laga geislaspilarann en hann fékk raflost af honum og dó..
Mér brá alveg rosalega, hann varð alveg svartur af sót að lit og hárið stóð út í allar áttir. Fyrsta skipti hjá mér sem simsinn minn deyr.. er með margar fjölskyldur í gangi og það tekur tíma að leika með þær allar…
Þvílíkt sjok, var búin að venjast að hafa Ross í leiknum og hann var einn af fyrstu sem fluttu í hverfið sem ég gerði.
Hafið þið lent í einhverju svipuðu þar sem simsinn ykkar deyr á óvæntann hátt?