Mér (eða ekki mér, öðrum hugara) datt í hug að gera keppni um besta fyrirtækið í The Sims OFB. Ég er reyndar aðeins búinn að þróa þessa hugmynd og var að spá hvort það væri ekki hægt að gera alvöru úr þessu. Skilyrði: Senda inn mynd (sem sagt screenshot úr fyrirtækinu/búðinni)af fyrirtækinu sínu. Maður þarf að lýsa fyrirtækinu t.d. segja hvernig reksturinn gengur, hve margir starfsmenn séu, hvað hvernig fyrirtæki/búð þetta sé o.s.f. Það eina sem á eftir að gera er að tala við stjórnendur. Ég er ekki búinn að tala við UNZA87 né gaesamamma en ég er að fara í það núna eftir smá. En já, hvernig væri þetta? Og takk tanbursti fyrir að koma með frábæra hugmynd!Endilega skrifa álit sitt. Og ef ykkur finnst þetta vera góð hugmynd megið þið endilega líka senda UNZA87 eða gaesamamma skilaboð, þið megið C/P það sem ég skrifaði hér áðan og senda það með skilaboðunum. Kveðja, Hugari.