Ég ætla að segja frá einni fjölskyldunni minni, sú fjölskylda heitir Adams.
Ég byrjaði með einn sims sem var kvennmaður og heitir Britney, hún kynntist manni sem hét Gary, þau urðu ástfangin og Gary flutti inn til hennar,Gary var mjög ríkur maður, það var alltaf sótt hann á limmu í vinnuna, eina nóttina eignuðust þau Gary og Britney strák sem heitir Tom, hann var mjög þægur krakki (toddler). En einn daginn þá kynntist Britney öðrum manni sem heitir Andy, hún varð ástfangin af honum og sagði því Gary upp og Andy flutti inn til Britneyar og Tom. Það sama gerðist með Andy og Britney þau eignuðust barn saman sem var stelpa sem þau skírðu Clara. Britney var komin með svo leið á Andy, hann var aldrei heima hjá sér, alltaf að vinna eða í bænum, þannig Britney sagði honum líka upp, þarna var hún einstæð tveggja barna móðir. En þetta er ekki búið..nei, svo kynntist hún þriðja manninum honum Paul, þau urðu einnig ástfangin og hann flutti inn og eignuðust barn saman, en þegar barnið var í maganum á Britney þá sá hún að þau Tom og Clara voru ekki hrifin af Paul, henni þótti rosalega vænt um börnin sín, þannig hún sagði Paul upp, þótt hún elskaði hann mjög. Svo var komið að því að hún mundi eignast barnið, þá kom í ljós að þetta voru tvíburar strákur og stelpa, sem hún skírði Trista og David, það var alltaf rosalega mikið að gera á heimilinu og og einkunnirnar hjá Tom og Clöru fóru alltaf lækkandi. En svo kom að því að Britney varð gömul (older) og stóð þarna ein fjögra barna móðir.

Takk fyrir að lesa þetta og vonandi hafiði haft gaman af. Afsakið stafsetninga villir.