Sæl og blessuð ég er kominn með ný svindl sem ég er búinn að finna og vil deila þeim með ykkur simsurum. Þessi svindl eiga pottþétt eftir að hjálpa ykkur mikið.

Fylla skill:

Fyrst verðurðu að gera CTRL, SHIFT C og skrifa í gluggann boolprop testingcheatsenabled true verður að skrifa þetta akkúrat eins.
Næst þegar þú ert búinn að gera þetta þarftu að save-a og fara útúr húsinu og fara svo aftur í það (það er líka hægt þegar maður kemur í leikinn eða neighbourhood-ið geturðu skrifað svindlið þar og svo farið í húsið).
Þegar þú kemur aftur í húsið skaltu bara klikka á skill-inn sem þig langar að fylla og draga bara örina hægri eða vinstri vinstri!

Fylla needs:

Ef þú nennir ekki að fara með simsinn á klósettið þá geturðu fyllt Bladder need-ið með því að gera það sama og hér fyrir ofan ctrl shift og c boolprop testingcheatsenabled true save-a og fara út úr húsinu og aftur inn. Tek það fram að þú þarft ekki að fara alltaf út þegar þú vilt fylla need bara gera þetta einu sinni (sama gengur um skill-ið). Sama og skill-ið bara draga örina til hægri nema þú viljir lækka skill-ið þá bara til vinstri;).

Fylla vinasamband:

Þarft að gera það sama og hérna fyrir ofan með boolprop og save-a og fara út og inn. Svo þarftu bara einfaldlega að draga örina yfir vinasambandið sem þú vilt að verði sterkara og þá er það komið.

Þá eru þessi mikilvægustu svindl komin! Vona að ég hafi hjálpað einhverjum! Takk fyrir mig!