Málið er að ég var að búa til fjölskyldu í nightlife. Huang fjölskylduna, ein kona sem hét Ling Ling Huang, einn strákur (child) sem hét Sion Huang og ein lítil (toddler) stelpa, Yin Huang.
Þau voru nýflutt inní stórt og fallegt hús og ég ákvað að setja svona ákveðið lítið tæki sem spúir eldi (skiljið þið ekki annars hvað ég er að tala um?).
Tækið kveikti eld ini hjá Sion og Ling Ling reyndi að slökkva hann. Ég hafði gleymt að kaupa síma og reykskynjara og var þessvegna í djúpum skít en ég tók mér samt tíma til að seiva leikinn svo að ef allt færi illa þá gæti ég reynt að bjarga þessu á annann hátt. Ég reyndi líka að nota boolprop til að gefa Ling Ling síma svo hún gæti hringt á slökkviliðið en vegna þess að ég hef svindlað svo mikið þá virkaði það ekki.
Ling Ling réð ekkert við eldinn og dó. The grim reaper kom og skráði hana dauða.
Sion lenti einnig í eldinum en Social worker kom og náði í hann og Yin áður en hann dó.
Núna er ég að hugsa hvort ég gæti bjargað fjölskyldunni því að ég seivaði leikinn áður en Ling Ling dó svo ég get farið aftur og reynt að bjarga þeim á annan hátt. Það var samt kviknað í þegar ég seivaði svo það gengur ekki að eyða tækinu sem kveikti eldinn.
Það er heldur ekki hægt að kaupa síma á meðan það er kviknað í eins og allir sem spila sims að ráði ættu að vita.
Hvað get ég gert til að bjarga Huang fjölskyldunni?
Konan var ein fallegasta kona sem ég hef búið til og ég vil ekki missa hana né börnin hennar :S SVo að ef þið vitið um eitthvað sem gæti hjálpað…endilega gefið álit!


Kv. Dumbledore

PS: Fjölskyldan er eins og flestir hafa örugglega getið sér til um…kínversk.