Í nótt eignaðist sims konan mín og maðurinn hennar tvíubura!!! Ég (eða réttara sagt simsarnir mínir) hef aldrei eignast tvíbura áður!!! Mér brá nú bara þegar ég las að það væru tvö börn á leiðinni!!! En svo átti hún bara eitt barn og ég hélt bara að ég hefði mislesið eitthvað? En nei það komu myndir af tveimur börnum (þar sem eru andlitsmyndir af fjölskyldumeðlimunum) og svo þegar hún var búin að eiga fyrri stelpuna sem heitir Anna þá kom Bella!!!

En núna er bara spennandi að sjá hvernig foreldrunum vegnar að ala þær upp? Hef venjulega haft nó að gera með eitt smábarn í einu :s hvernig verður þá að vera með tvö? Ég verð bara að sjá það núna á næstu dögum ;)