Nú er ég búinn að vera að brasa í einhvern hálftíma við að reyna að koma nýju drasli inn í Sims 2 fyrir systur mína, og það gengur mest lítið. Vinsamlegast segið mér ekki að ýta á install því það hefur ekki verið í boði á neinum þeim fælum sem við höfum downloadað. Á einhverri síðu las ég þær leiðbeiningar að það ætti að unzippa öllu í The Sims 2\Downloads og þá væri maður set en það bara gengur ekki upp hjá mér! Hvað er ég að gera vitlaust? Gæti málið verið að við erum með Sims University uppsettan líka?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _