Ég er búinn að senda þetta vandamál á /windows og ég ætla að senda það inn hér líka í þeirri von að einhver hafi fengið þetta vandamál og hafi náð síðan að leysa það.

Ég var að fá sims2 og ég ætlaði að installa honum þegar það kemur að því að maður verði að installa directx 9c eða hærra svo eg ýtti bara á “Ok”. Eftir 30sek kemur installation failed og eitthvað meira vesen.

Ég fór á síðu microsofts og downloadaði þessu Directx og installaði því þannig en ekkert gerðist!

Síðan downloadaði ég nýjasta drivernum hjá skjákortinu mínu (Ati Radeon 9800 Pro) og ekkert gerðist við það heldur!!

Ég er líka búinn að fara á ýmsar síður t.d. eagames og sent þeim spurningu en ég fæ ekkert svar.

Svo ég vona hvort þíð vitið hvað er að og hvað ég geti hugsanlega gert!!