Eins og stendur hér fyrir ofan þá vil ég útskýra fyrir ykkur nánar svindlið boolProp testingCheatsEnabled true og meira nýtt sem ég hef komist að.

—–

Samt er sumt sem ég ætla að segja hér í svona nr 1, nr 2 og þannig;)

—–

1. Svindlið þarf ekki að vera rétt stafsett, eins og stórir stafir hér og þannig en hins vegar þurfa að vera sömu bilin.

2. Viljiði fá geimveru lit á húðinni og geimveruaugu þá þarf að gera enter, enter shift og N.

3. Til þess að svindlið virki á lóðinni skrifið það í svindlgluggann (Ctrl + Shift + C) og svo getið þið, ef þið haldið shift inni, ítt á hvaða hlut sem er og gert eitthvað við hann. Eins og t.d. ef að klósettið verður óhreint, þá helduru bara shift inni og ítir á það og þá geturu til dæmis sett það á Ultra-Clean!

4. Ef ítt er á Force Error hverfur hluturinn! Ef einhver kemur kannski í heimsókn sem þú vilt ekki hafa, haltu þá shift inni og íttu á Force Error og hann hverfur!

5. Viltu geta breytt skillsunum? hvað vinirnir eru þér mikils virði? hvaða áhugamál þú hefur? gerðu svindlið í Neighbourhood Screen eða í hverfinu, áður en að þú ferð í húsið. En þegar að þú ert komin/n í húsið þá eiga að vera stafir efst í hægra horninu. Ef þeir eru ekki þá virkði þetta ekki. En til þess að breyta skills-unum þá dreguru til dæmis í skill nr. 10 eða 5 eða bara eitthvað:)

—–

Ég vona að þið hafið skilið þetta:) en svo er líka notla hægt að nota þetta frábæra svindl í svo margt. Eins og ef þið eruð með gamla konu eða karl segjum bara konu og þú vilt að hún deyji, en fái svona aðeins öðruvísi legstein (gulllitaðan). En ef konan er ekki nógu gömul til að deyja haldið þá shift inni og ítið á hana. Veljið valmöguleikann “Set to birthday” og haldið svo aftur shift inni og veljið “*Set Asprition”, með stjörnu fyrir framan, og veljið “Max” af öllum valmöguleikunum. Bíðið svo þangað til að klukkan verður orðin 18:00. Ef Asprition Meter verður orðinn gulur eða grænn gerið þá aftur eins og ég sagði með “*Set Asprition” og veljið “Max” rétt áður en klukkan verður 18:00. Og svo þegar að konan er dáin þá á að koma svona sérstök aska og sérstakur legsteinn (fer eftir því hvort að það er úti eða inni).

—–

Þar hafið þið það:)

Ef inhverjar spurningar svarið þá þessu eða sendið mér póst:)

—–

tata!