Nýjasti aukapakkinn: Nightlife (sep '05) Núna í september er von á allra nýjasta aukapakkanum sem ber heitið NIGHTLIFE.
Þessi leikur er á margan veg eins og Hot date fyrir Sims 1 en bíðið nú við!
Í Nightlife er hægt að fara í bæinn “á djammið”, farið út að borða og margt fleira. Fullt af nýjum stöðum eru auðvitað líka.
En eitt sem mun krydda leikinn er hinn litli rómantískur leikur. Þú ferð á stefnumót og færð stig og verðlaun, eftir því hversu vel þér gengur á stefnumótinu. Ertu að segja réttu hlutina? Fellur persónan fyrir töfrum þínum? Ef hún tekur vel í það sem þú gerir eða segja, færðu stig og heildarsumma þeirra gefur þér skemmtilega vinninga t.d. blómvönd.
Einnig er komið nýtt aspiration: Pleasure Seeker. Simsar með þetta aspiration vilja skemmtun, vilja ekki leiðast og já vilja skemmta sér, hafa fjör ;) t.d. með því að fara í heita pottinn, eiga góð stefnumót, fara á djammið og fleira.
Fullt af nýjum hlutum koma einnig, t.d. pókerborð og KEILA. Ó já, nú geta simsarnir farið í bæinn og spilað keilu.
Engar nýjar vinnur verða í boði en þú getur farið að vinna sem DJ á klúbbunum. Svipað eins og að vinna í university.
Um leið og ég frétti meira, læt ég ykkur vita :)