The Sims 2 University : Prima's Official Strategy Guide eftir Greg Kramer er frábær! http://www.primagames.com/strategy/book/7098/ Þetta er 464 bls bók með leiðbeiningum og svindlum fyrir The Sims 2 og The Sims 2 University aukapakkan saman í einni bók. Ég keypti þessa bók á Amazon http://www.amazon.com/exec/obidos/tg/detail/-/0761546367/qid=1113076828/sr=8-2/ref=sr_8_xs_ap_i2_xgl14/102-2094546-3631321?v=glance&s=books&n=507846 og hún er frekar stór og þykk. Hef verið að lesa hana á fullu og “glósa” það sem ég vissi ekki áður, fara með yfirstrikunarpenna yfir textann og svona. Fékk bókina innan við viku þó þeir á Amazon segðu að ég fengi hana örugglega ekki fyrr en eftir 2 vikur eða meira.
Ég mæli með að þið kaupið hana á Amazon þar sem hún er ódýrust þar. Held að bókin komi ekki til landsins en er ekki viss. Þið sem eigið ekki kreditkort gætuð jafnvel prófað að tala við t.d. BT eða Skífuna og spurt hvort þeir muni selja bókina eða hvort þeir geti pantað hana fyrir ykkur. Þessi bók er ómissandi fyrir The Sims 2 unnendur!