Af hverju er svona rosalega gaman að drepa fólkið í Sims?
Mér finnst allt í lagi að loka fólkið inni og láta það veslast upp.
Nú er ég oft í Sims Bustin Out, Free Play og ef fólkið hjá mér eignast kannski til dæmis ljótan strák sem er málaður í framan og líkist foreldrunum ekki neitt og er ekki góður í skólanum eða hefur áhuga á að gera neitt yfir höfuð, ég lét hann inn í tómt herbergi og hann er ennþá að deyja þarna aleinn…
Annars hef ég nú látið margt fólk lokast inni og líka í venjulegum Sims og mér bara finnst það alltaf jafn gaman…
Ég bjó meira segja til eitt hús sem ég lét alla deyja í og þá komu náttúrulega hellings af draugum, það var reyndar mjög skemmtilegt…