Tilgangur áhugamálsins um The Sims er að vera vettvangur umræðu um tölvuleikinn The Sims, fyrst og fremst aðdáendum til ánægju og yndisauka. Vonast er eftir opinni en kurteisri umræðu þar sem þátttakendur umgangast hver annan af virðingu og tillitsemi.

Þátttaka undir skjánafni á huga.is er til þess að þátttakendur geti tekið þátt, sent inn fyrirspurnir eða svarað, með opnari huga en mögulegt væri undir nafni.

Skjánöfnin veita ekki leyfi til hegðunar sem er særandi eða á einhvern hátt neikvæð fyrir framgang umræðunnar.

Stjórnendur áhugamálsins hafa rétt til að eyða út hverju því efni sem ekki er metið falla að tilgangi áhugamálsins.

Lesið meira um þetta hér: http://www.hugi.is/sims/ neðst á síðunni.