Ég bjó til fjölskyldu í sims2 sem er frekar furðuleg. ég gerði geðvikt ljótan kall og ógeðslega konu og gerði svona barn eftir genunum þeirra, sem var svona eldri manneskja. svo ákvað ég að hafa barnið bara mömmu konunar og bjó til nýtt unglingsbarn. Þau voru öll mjög ljót og furðulega máluð.


Svo flutti fjölskyldan í hús, sem var vægast sagt mjög furðulegt. Það var appelsínugult með svona hallaþaki! svo fór mamma konunar að reyna við manninn, konan varð móðguð og gerði svona break up við kallinn, sem þýðir að hann fer bara úr fjölskyldunni og maður getur látið hann flytja annað. Bara allt orðið geðveikt drama. Svo fóru mamman og amman að rífast alveg geggjað og stelpan var svo sorgmædd yfir því að hún var alltaf að grenja.


ég er ekki búin að gera meira í þessari fjölskyldu, en ég lét kallinn flytja í nýtt ljótt hús. Skrifa meira seinna þegar meira hefur gerst :)
Trínan