Jamm mig langaði bara að lýsa þessari skemmtilegu fjölskyldu minni sem ég er búin að vera svolítið legni.. Hér kemur það

Ég fann ekkert gott nafn á fjölskylduna svo vinkona mín skýrði hana bara Kaching.

Allavega í byrjunina af þessari fjölskyldu voru bara tvö hjón sem heita Lil og Lucas. Ég byrjaði að innrétta húsið nokkuð stórt á tveimur hæðum með 4 svölum og sundlaug og allar græjur.. bara nokkuð flott hús.

Svo fljótlega kynntust þau mjög vel og eftir svona sirka 2 daga
varð konan ólétt,og það var sko bara svona að hún borðaði og fór á klósettið og svaf,
og var komin með stóra kúlu.
Konan fæddi lítinn dreng að nafni Tom.
Þau urðu mjög ánægð með að hafa eignast hann. Hann var bara svona venjulegur drengur sem grét og vantaði alltaf athygli og alltaf þurfti að hugsa um hann.
Svo ættleiddu þau annan dreng sem Heitir Jason hann var aðeins eldri en bara eitthvað um tveggja ára og hann var svartur ,alger dúlla.
Hjónin urðu mjög þreytt að þurfa alltaf um þau og gerðu allt á síðustu stundu eins og að fara á klósettið og þannig.
Svo stækkaði Tom. Svo eftir nokkra daga varð Jason fjögra ára og þá keypti í köku og svoleiðis.
Þannig núna er Jason eitthvað um fjögra en Tom ennþá eitthvað um tveggja.
Tom á held ég að stækka eftir einn simsdag. Síðan varð vesen ,maturinn kláraðist og ég var búin að gleyma hvernig ætti að kaupa mat,og tölvan bilaði þannig ég gat ekki keypt á netinu.
Ég vissi samt að það væri hægt að hringja en bara ekki í hvað því ég er ekkert sérstök í ensku.

En ég reddaði mér hringdi bara í eitthvað og fann það á endanum, hringdi og hann kom með matinn. Svo var konan að reyna að laga tölvuna og hún fékk raflost og varð eins og Sótari.. en ég lét hana bara í sturtu og gaf henni að borða..

Allvega nenni ég ekki að skrifa meira í bili.
Kemur kannski meira um þessa fjölskyldu seinna ef þið hafið áhuga;) takk fyrir að hafa lesið þetta allt… þeir sem nenntu því:P

kv. Assabesta..