Í öllum reviewum um the Sims 2 og öllum fréttum um hann var talað um að það væri hægt að hafa glugga og hurðir á skáveggjum. Ókei, voða spennandi, flott og plásssparandi. Svo fer ég að spila Sims og prufa fyrst hús sem kom með leiknum. Þar voru hurðir og gluggar á skáveggjum. Eeeen svo þegar ég fór að byggja mér hús þá gat ég bara ómögulega sett hurðir og glugga á skáveggi! Hvernig sem ég reyndi og í hversu mörgum húsum sem ég reyndi þá bara tókst það ekki! Hefur einhver annar lent í þessu eða er minn leikur bara svona mis?

Kv. K