Nr.1 Hvernig getur fólkið orðið frægt?? Þegar maður er að fara inn í sims 2 þá kemur svona myndband og þar er einhver kall sem er frægur, hann kemur út úr þyrlu og eitthvað..mig langar svo til að vita það..

Nr.2 Þegar unglingarnir stelast út á kvöldin..á þá ekki að vera hægt að hringja í lögguna og láta hana koma með unglinginn aftur?? Ég var nefnilega á sims2 heimasíðu um daginn og þá var mynd af unglingi og löggu og foreldrum hennar, svo fyrir neðan myndina þá stóð eitthvað um að unglingarnir gætu stolist út á kvöldin.

Nr.3 Mér finnst eitt skrítið, ef maður fer í create a new family og ætlar að búa til fölskyldu þá gerir maður kannski fyrst fullorðið fólk og svo vill maður kannski hafa lítið barn og gerir það, svo þegar maður er búinn og ætlar að láta þau flytja í hús, þá er það ekki hægt, þá kemur bara einhver rammi og þar stendur held ég að það er ekki hægt að hafa krakka með :( af hverju er það ekki hægt??

Nr.4 Ég var í einhverju húsi um daginn, og þar bjó bara einn maður, svo um kvöldið lét ég hann halda partý, og þá kom einhver kona sem hann var hrifinn af, þannig að ég lét hana flytja inn til hans, svo seinna um kvöldið kom kona (sem var ekki mjög falleg, hún var með tígó og harry potter gleraugu) og hún sá þau vera að kyssast og eitthvað þá kom hún að manninum og bara sló hann endalaust..ég hélt að hún ætlaði að drepa hann, en svo gáði ég og þá sá ég að þau voru gift! Núna eru þau ekki lengur vinir en eru samt ennþá gift..veit einhver hvort það sé hægt að láta þau skilja?!?