Ég bjó til mánn sem hét Eric Kandrak og lét hann flytja í tilbúið hús. Svona er dagbók sem ég gerði og ég ímyndaði mér að ég væri hann.
Dagur 1: Dularfullur maður birtist og setti kassa fyrir utan húsið mitt. Eftir býflugna vinnuna opnaði ég hann og hann var fullur af galdra dóti!
Ég er byrjaðir að gægjast í sjónaukan.
Dagur 2: Logic gáfan mín er góð og ég er kominn með 1 beewax. Ég hoppaði í holuna og lenti í einhverjum hryllings garði. Það var hroðalega sárt að fá raflostinn og hryllilegt að hugsa ef all beitta dótið hefði lent í mér!
Dagur 3: Ég kíkti í sjónaukan fór að borða. Svo fór ég í holuna.
Eftir að hafa starað á galdrasýninguna ákvað ég að gera galdrastorm, og hann gekk upp! Þegar nú var komið var ég komin með 51 galdrapeninga fór ég til Vicki vampíru (sem mér líkar ágætlega við) og keypti mér drekahreiður með eggi fyrir 49 galdrapeninga sem var frekar ódýrt.
Ég fór heim með eggið og lét það hlusta á tónlist, svo fór ég að sofa.
Dagur 4: Ég vaknaði, fór á klóstið, fékk mér að borða og fór í sturtu áður en ég fór út til að kíkja á dreka eggið.
Og viti menn þegar ég fór út var drekinn kominn út úr egginu og nýtt komið. Hann heitir Burnei og er fyrsta dýrið mitt eftir að ég flutti út frá móðir minni og föður.