Ég fór í Sims hot date og í “The Clark family” sem að ein kelling með barn býr. Hún heitir Lolita en stelpan Lola. Á meðan Lola var í skólanum fór Lolita niður í bæ. Hún ætlaði að finna sér eikkern kall svo hún væri ekki svona einmana. Hún flörtaði alla kallana þarna í Kringlunni en enginn vildi hana. Þá sá hún annan kall sem hét Pierre. Þau töluðu og töluðu, gáfu hvort öðru Compliment og dönsuðu við hvort annað, þá var hann orðinn vinur hennar. Svo byrjaði hún að flörta hann, og hann flörtaði á móti! Í smátíma var hðun alltaf að faðma hann og gefa honum gjöf þangað til þau voru ástfangin. Þau voru í það að kyssast þegar kellingin hans kom og sló hana utan undir og tók Pierre með sér heim. Þá varð Lolita fúl og fór að fá sér að éta og settist á borð með eikkerjum kalli. Hann hét Charlie og þau urðu ástfangin. Svo bað hann hennar, og hún sagði nei og þá hættu þau að vera vinir (Akkuru sagði hún nei!!!) Þá fór hún bara að versla sér ný föt og fleira flott, þegar annar maður kom inn og vildi endilega tala við hana. Þau urðu góðir vinir og kysstust á endanum. Hann hét Boyd og hún bað hann að flytj inn í húsið hennar. Hann vildi það og flutti inn. Hann og Lola urðu góðir vinir og síðan bað hann hennar og það varð brúðkaup! Þau eignuðust barn og það var strákur sem heitir Frank. Þau lifa nú í sælu, og Lolita er ekki lengur einmana.