Ég hef verið að undanförnu að skemmta mér við að spila sims.
Eitt sinn bjó ég til konu ( Elena )með dóttur sína Bínu.
þær áttu fínt hús og höfðu það gott. Einn daginn ákvað ég að kaupa handa þeim hamstur.
Eftir 2 daga byrjaði Elena að hósta og hósta og einn daginn féll hún á gólfið og dó.
Bara si sona ????? og það sem meira var. Dauðinn ( í svartri skikkju og með ljá ) kom og sótti hana og eftir var legsteinninn á miðju gólfi. Ég var í nokkra daga að reyna að fá stelpuna til að komast inn til annarar fjölskyldu en varð að hætta með hana þar sem ég kunni ekki nógu vel á leikinn þá.
Var það hamstrinum að kenna að hún dó eða hvað…….lol

Svo er annað sem hefur skeð nokkrum sinnum og það er, að þegar einhver simsinn er að kíkja í stjörnukíkinum hverfur hann upp í loftið og birtist svo vanalega morguninn eftir og hugsar bara um geimverur.
Vitið þið hvort það getur eitthvað annað skemmtilegt skeð, automatiskt meina ég.
Kveðja gamla nörd nony