Ég var að setja inn Sims Unleashed og ég bjó til 6 manna fjölskyldu, mamman og pabbinn hétu Marie og Jonh Smith, svo voru tvíbura stelpur sem hétu Cathy og Emily Smith og tvíbura stráka sem hétu Peter og Jack Smith. Þau byrjuðu bara sem venjuleg fjölskylda, áttu litla og sæta íbúð með stórum garði, á lágum launum og spöruðu rosa mikið. Svo byrjaði ég að svindla, byggði rosa flott hús á tveimur hæðum og krakkarnig með lúxus herbergi og allt það flottasta, foreldrarnir eru bara með lítið herbergi, enda sofa þau bara á gólfinu, fara sem s.s. aldrei að sofa, nenna því ekki og svo detta þau bara niður af þreytu. En þetta er mjög skrítin fjölskylda. Marie datt einu sinni niður og sofnaði í nokkra klukkutíma, vaknaði, labbaði smá og datt svo aftur niður og sofnaði. Cathy svaf einu sinni heila nótt sofandi! En þau eru rosaleg vitlaus. Það kviknaði einu sinni í og allir voru í rosalegu uppnámi og Cathy labbaði bara inn í eldinn og framdi sjálfsmorð eða eitthvað og hún dó því slökkviliðsmanninum þótti mikilvægara að slökkva í ískápnum. Svo ég gerði rosa flotta gröf með blómum upp við húsið. Svo var pabbinn rekinn daginn eftir því hann mætti ekki í vinnuna því hann var að syrgja Cathy og honum var samt alveg sama þegar hún brann. En ég er ekki komin lengra í leiknum en ég skal sko skrifa næst þegar eitthvað klikkað gerist hjá þeim sem verður ekki eftir langann tíma ;P

Kisustelp@
just sayin'