Ég var að búa til fjölskyldu áðan. ALlir í henni eru í ljótum og druslulegum fötum og húsið er mjög lítið. Þau eru 4 í fjölskyldunni svo að ég keypti bara 2 ódýrustu hjónarúmin svo að það eru tvö í hverju rúmi. Ég setti ekki þjófavörn eða reykskinjara og svo keypti ég bara það ódýrasta af hlutunum. Lélegasta ísskápinn, ódýrustu eldavélina og fleira sem var bæði lélegt og ódýrt. Bara konan var með vinnu og fékk 40 dollara í laun. Svo þegar karlinn var að elda kviknaði í húsinu og hann og krakkarnir dóu en konan var í vinnunni og býr nú í litlu herbergi, allt hitt varð að ösku….

Ég var samt bara að prófa að nota allt lélegt og þannig…nú veit ég hvernig það fer!