Crazy er klikkaðasta fjölskylda sem ég hef gert. Ég gerði húsið í laginu eins og kastala og sjálf eru þau klikkuð. Eins og kveikja í arninum og svo fara þau að lesa blaðið við arininn og þá kviknar í því og um leið í stólnum sem þau sitja í. Í fjölskyldunni eru karl, kona og lítill heimskur og klikkaður strákur. Strákurinn er klikkaðastur því að hann á herbergi sem er bara svalir og þar galdrar hann endalaust og leikur sér með eld án þess að ég segi honum að gera það. Það er nú bara þannig að herbergið hans er mjög stórt og mikið í því þannig að hann hefur kveikt í mörgum hlutum með eldinum! En fjölskyldan en samt miklu klikkaðri….ég get bara ekki lýst því, ég veit heldur ekki hvernig hún varð svona klikk!