Fyrsta fjölskyldan sem ég gerði þegar ég fékk SiMs var Wilson family. Í fjölskyldunni voru karl, kona, strákur og stelpa. Fyrst áttu þau bara einn hund og allt gekk mjög vel þangað til ég keypti tvo hunda til viðbótar og þá fór allt í klessu. Það gekk ekkert að hugsa um hundana svo að það kom kona og tók einn og annar dó. Þá var einn eftir. Allt var í lagi þar til að það kviknaði í húsinu og ekki tókst að slökkva eldinn. Allir dóu nema hunduinn og núna er hann sá eini í fjölskyldunni. Ætli hann eigi ekki eftir að deyja líka!?