Ég bjó til fjölskyldu sem samanstóð af pabba og tvíburum,strák og stelpu.Pabbinn hét Stefán,strákurinn Daníel og stelpan Erla.Þau fluttu í lítið sætt hús á einni hæð og voru alltaf rosalega glöð.Lét pabbann síðan finna sér konu.Hann fann sæta konu sem hét Agata.(en oft er flagð undir fögru skinni)Agata var svo leiðinleg og vond við krakkana að ég bjó til sæta og góða konu handa Stefáni og skírði hana Maríönnu.Lét hana og Stefán giftast og fannst það vera gott á Agötu.En hún kerlingin Agata hafði fleiri tromp í hendi.Maríanna flutti inn til Stefáns og Agötu og þau (Stefán og Maríanna)eignuðust fljótt litla stelpu sem hét Matthildur.Þau eignuðust svo eitt barn til viðbótar og skírðu hann Georg.Agata var samt svo kvikindsleg að hún drap Maríönnu.Stefán gafst ekki upp og fékk sér enn eina konuna en í þetta skiptið hét hún Erna.Erna eignaðist eitt börn með Stefáni og það stelpa sem hét Erla María.Seinna eignuðust þau lítinn strák sem var kallaður Lilli.En Agata er alltaf jafn vond, hún drap konuna áður en Lilli var orðinn stór.Fann sér svo mann og giftist honum.Maðurinn sem hét Einar flutti inn.Stefán dó úr ástarsorg áður en Einar kom því báðar konurnar hans voru dánar og Agata var svo leiðinleg.Agata drap svo Einar,drap öll börnin nema tvíburana,Lilla og Matthildi og gifti sig.Maðurinn sem hún giftist var jafnvondur og hún og hét Ormur.Þau fóru illa með börnin,létu þau vinna öll verstu verkin og gáfu þeim lítið að borða.Agata eignaðist litla,ljóta og leiðinlega stelpu sem hún skírði Magnea.Magnea var alltaf að stríða hinum krökkunum og skipa þeim fyrir.En Magnea var send í herskóla og ekkert um hana meir.Agata var svoo fúl að hún drap Matthildi.Bráðlega dó karlinn hennar og þá gifti hún sig konu.Konan var góð við krakkana en Agata var ekki glöð með það.Konan hét Anna.Lilli var í mestu uppáhaldi hjá Önnu þannig að Agata drap Lilla og Anna varð mjög leið.Þetta þoldi Agata ekki og drap Önnu(meiri kvikindisskapurinn í henni).Seinna giftist hún annari konu sem var vond og drap Daníel.Agata hafði ekki ætlað að gera það strax svo hún drap konuna.Agata giftist ÞRIÐJU konunni en sú kona sem hét María fannst hún ekki vera góð við Erlu svo hún drap hana(María drap Agötu)og giftist vænum manni sem voru góð við Erlu allt sitt líf:)!!