Ég var með konu sem að ég hef spilað með dálítið lengi. Ég lenti í vandræðum með hana og það stórum.
Hún var ástfangin af manni sem átti heima eitthvers staðar rétt hjá (Með Rauðu Hjarta) og munaði lítið í brúðkaupið. En ég var svo mikill fáviti að ég eyddi dálitlu mikilvægu!

Það sem langflest ykkar vita ekki er að “gangurinn” þar sem fólkið kemur inn á lóðina þína , ég get útskýrt þetta frekar með endinn á gangstéttinni, er táknaður sem stóll eða borð (Veit ekki alveg hvort) þarna niðri þar sem maður fær upplýsingarnar um hvað varan kostar og svona þegar maður heldur á henni.
Á skjánum heldur þú um ekkert en í alvörunnin heldur þú um útgönguleiðina !!!
Ég gerði þau mistök að ég EYDDI þessum stólum.
Núna getur enginn , þá meina ég ENGINN komið inná lóðina .
Ég get hringt í fólk og beðið það að koma yfir en það kemur alls ekki yfir . Fyrst fattaði ég þetta ekki en svo rann þetta í ljós!

Ég þurfti náttúrulega að flytja því að auðvitað gat ég ekki búið þarna lengur og þegar ég flutti þá var maðurinn ekki lengur hrifinn af konunni og “Rauða” hjartað farið og búin að missa alla vinina ogþurfti að byrja uppá nýtt !

Ég þoli þetta ekki og mæli með að þið eyðið þessu ekki !!!

Ef þetta er ruglingslegt látið mig vita og ég get skýrt þetta út fyrir ykkur.

Pemma…..