Ég veit ekki hvort þetta er rétti flokkurinn fyrir þessa spurningu en ég þarf hjálp.

Ég gat spilað Quake 1 með WinME en þegar ég fékk mér WinXP Pro gat ég ekki keyrt upp leikinn. Hann slökkti á sér á sömu sekúndunni og ég tvísmellti á Quake.exe.

Ég prófaði að keyra hann frá Command Line (DOS í eldri stýrikerfum), og þá fékk ég Memory error sem er svona:
———–
Quake v1.01
Locked 1 Mb Image
Locked 11 Mb Data
malloc´d: 11780096
Exiting due to signal SIGSEGU
General Protection Fault at eip=00043a47

——-
Svo kemur eitthvað meira óskiljanlegt.
Hefur einhver átt við akkúrat svona vandamál að strýða við Quake 1 og lagað það?