Aðalfjölskyldan sem ég er að dunda mér með er Jack Collins og konan hans Amy.
Jack er á fullu að reyna að verða frægur. Hann er komin með 2,5 stjörnur og hefur mjög góð sambönd. Á meðal annars fjóra fræga vini. Hann er kominn inn á listann yfir Who's Hot en er reyndar enn í 10. sæti. Hann er kominn með fullt í Charm og Creativity en allt hitt er ca. hálfnað. Enn þénar hann þó lítið, en það fer sívaxandi.
Amy kona hans er módel og þénar um 600 Simoleons á dag. Hún vildi aldrei verða módel. Draumur hennar var að verða dýralæknir en Jack vildi að hún færi frekar í módelstörf og ákvað hún að fylgja því sem hann sagði.
Þau búa í litlu húsi, eru að safna fyrir stærra húsi. Amy langar að eignast börn og dýr en Jack vill ekki heyra neitt um það… hann er of upptekinn við frama sinn… EF hann passar sig ekki, fer Amy fljótlega frá honum…