Svona er málið, ég er ný búin að fá sims making magic, og ég er búin að búa til konu og allt í rosa gúddí. Búin að láta hana galda alveg helling og fá fullt af galdrapening fyrir að koma fram
á svona sýningum og allt. Læt hana meira að segja búa til sumt af hráefnunum í galdrana sjálf. :D En síðan kom ég að galdri, og ég finn ekki svona “hráefni” í hann. Og reyndar ekki nokkra aðra galdra. ég er búin að eiga þennan leik í jaaa….sirka viku. Og ég er búin að vera 3 eða 4 daga að leita að þessu í galdrana mína-Diamond dust, Snake venon, Pegasus feather, Clacial Glass, clown confetti, Wizard eyelashes og black roses! Ég finn þetta ekki. Búin að fara í magic towm, old tow, down town, búin að fara í frí, ég er búin að leita allstaðar. Ef einhver veit hvar ég get fundið þetta væri það vel þegið, mig langar mjög til að geta haldið áfram í leiknum mínum.
Já og svo keypti ég mér lítinn dreka unga og ég veit ekkert hvað ég á að gefa honum að borða??