Ég spila Sims af krafti en lenti í því núna rétt áðan að Joe, kallinn minn og konan fóru að hósta af krafti og hnerra, virtust vera veik. Ég er með þrjá í sambúð en af því að Joe leið svo illa sendi ég konuna og makann hennar í vinnunna en ætlaði að slappa af með honum Joe. Læt hann bursta í sér tennurnar, men ve och fasa, hann dettur allt í einu niður dauður!!

Rétt á undan var ég reyndar búinn að kaupa naggrís, gæti tengst þessu einhvernveginn, en hefur einhver annar lent í þessu og veit hvernig á að bjarga fólkinu frá að drepast úr plágu?:)