Ég keypti Superstar núna fyrir nokkru og hef verið að spila leikinn. Mér gengur voðalega vel að komast upp í tvær stjörnur en svo er þetta helv.. módel myndataka sem gengur ekki upp hjá mér. Þegar ég mæti með gaurinn þá er hann í mjög góðu skapi - bara alveg skínandi grænn og búinn að uppfylla öll skilyrði en samt sem áður þá gengur það EKKI og svo í þokkabót þá missir hann alltaf stjörnuna sem hann er með svo það er alltaf skref aftur á bak.
Mig langar mest til að henda helv.. tölvunni út um gluggann þegar þetta gengur svona illa.
Á einhver góð ráð við þessu vandamáli?