Mér finnst sims ekkert svaka skemmtilegur lengur. Ég var einu sinni stundum í honum. En eitt skemmtilegt atvik gerðist, ég bjó til fjölskylduna mína, mig,pabba, kelluna hans pabba(pabbi og mamma eru skilin) og litlu systirina mína. Svo gerði vinur minn sér líka kall. Og hann kom eitthvað að heimsækja fjölskylduna sem ég gerði. Allavena þá lét ég litla bróður minn alltaf um heimilistörfin, þangað til hann neitaði þá múraði ég vegg kringum hann útí garði, og hann fór í herinn. En svo gerðist það að Vinur minn hafði verið að tala svo mikið við kelluna hans pabba(í leiknum sko) að þau fóru saman nakin í bað, og á endanum giftust, og fluttu saman í hús vinar míns. Ég sætti mig ekki við þetta og reyndi að fá hana aftur,það virkaði ekki þannig að ég brenndi hús vinar míns til kaldrar kola. En hún vildi samt ekki koma. Það endaði með því að ég brenndi mitt eigið hús til kaldrar kola, ég held meira að segja að ég hafi brennd littlu systir mína og sjálfan mig með inní.
Annars er ég hættur í þessum leik, það eina sem ég gerði var að byggja hús og brenna það síðan með flugeldum. En það var gaman af þvi um tíma.
————–